06.04.2009 20:50:23 / thorunn.
Jæja, hlaut að koma að því, ég er alveg hætt hér! Komin með nýja þar sem ég verð duglegri .. www.sylvian.blog.is Og endilega kvittiði á mig þar!
Kossar og knúsar
Þórunn Sylvía
»
11.02.2009 20:08:36 / thorunn.
Ef einhver hefði sagt mér fyrir nokkrum árum að ég ætti eftir að eiga svona yndislegt líf hefði ég hlegið og labbað í burtu! Ég er ein hamingjubomba þessa dagana, allt að ganga upp og alveg eins og ég vil hafa það 
Ég á bestu fjölskyldu og vini í heimi sem standa saman ef eitthvað kemur upp á, og ég komst nú að því eftir bílaævintýrið mitt um daginn hvað ég á trausta vini vá.. Það var sama hvað ég tók mörg drama og reiðisköst, samt voru þau til í að keyra með mér og leita og hugga mig og allt bara...
Þið eigið inni hjá mér!
Og svo vinnan, jii, hefur aldrei liðið jafn vel í neinni vinnu, þykir svo vænt um skjólstæðingana mína að þau eru orðin fjölskylda 2 og vinnan heimili nr 2. Svo er ég í svo skemmtilegu námi sem ég hlakka svo til að halda áfram í, og framtíðin svo björt, hef ekki áhyggjur yfir einu né neinu
Og svo það nýjasta, I´m going to Thailand!!! Jeee
Fer í apríl, og langaði auðvitað að hafa einhvern vin eða vinkonu með en það er náttla meira en að segja það, stuttur fyrirvari, allir í skóla og svona .. Mjög miklar líkur á að Jói komi með mér, pabbi hans býr einmitt á Pattaya, við getum ekki andað úr spenningi!!! En ef hann kemst svo ekki með skulum við bara vona að ég verði ekki rænd þegar ég millilendi í arabísku furstaríkjunum!!! hahahaha ... Neinei ætli ég geti ekki bjargað mér
Þetta reddast allt!
En tilgangurinn með þessu bloggi var aðallega að þakka fyrir mig, ekkert sjálfsagt að eiga svona yndislegt fólk að þegar á reynir, and i got your back
Elska ykkur öll!
Ykkar Þórunn 

Þetta er smá kriki yst á ströndinni, rosalega fallegt þarna

Og strandlínan að kvöldi til 

Og svo er þetta svona á hverjum einasta skemmtistað hahaha! Getið ímyndað ykkur hvað var óþæginlegt að fara með pabba á djammið á kvöldin hahaha
»
01.02.2009 14:16:26 / thorunn.
Jæja, hér sit ég á 12 tíma vakt í vinnunni og hef lítið annað að gera en að blogga og læra .. Ógeðslega langt síðan ég bloggaði þannig hef nú einhverjar fréttir aldrei þessu vant haha ..
Númer eitt er náttla að bíllinn minn er fundinn, og ég get ekki líst tilfinningunni þegar ég fékk hann aftur .. Hann fannst ss úti á Granda og einhverjir djönkarar höfðu tekið hann, og stolið öllu úr honum að sjálfsögðu en það er bara allt í lagi þar sem ég fæ það bætt... Ég var meiraðsegja næstum búin að ákveða að kaupa mér annan bíl haha, geeeðveika Mözdu og hún er ennþá föst í hausnum á mér 
Annars erum við vinkonur bara hressar, Arna og Tanya ætla að flýja landið í smá tíma og fara til Spánar núna 5 feb, jii hvað ég skil þær.. Svo er ég farin UM LEIÐ og ég útskrifast í Maí, verður maður ekki að halda upp á þetta hehe
Ekkert sjálfgefið að kjéllan nenni að vera í skóla!
En ég er ss byrjuð í stuðningsfulltrúanámi, og er ennþá í naglaskólanum og skráði mig í fjarnám líka og gengur bara mjög vel!.. Nóg að gera og varla tími til að skjótast í ljós á daginn þó að ég fari nú venjulega í ræktina.. Og þetta er voða svipað hjá stelpunum. Voðalega þæginlegt upp á bækur og svona haha, fáum bara hjá hvor annari!
Svo er hann Gaui stórvinur minn búinn að opna nýjan og rosalega flottan stað, Kaffi Zimsen, sem er kaffihús á daginn og svo eru dj-ar um helgar .. flottasta fólkið í bænum .. Mæli með því 
Svo vil ég enda á að þakka ykkur öllum fyrir stuðninginn í þessu blessaða bílamáli haha, þið eruð best 
En ég bara veit ekki hvað ég á að segja meira, ef einhver annar gæti drullast til að blogga hérna þá væri ég kannski duglegri haha ...
Ykkar Þórunn Sylvía 

Opnun Jacobsen, gamla Rex ... Mæli líka með því
»
28.01.2009 16:44:08 / thorunn.
Sæta rauða Jimnyinum mínum var stolið, fyrir utan hjá mér í fyrradagsnótt!
Hef reyndar mjög sterkan grun um að hann sé annaðhvort á vappi eða parkaður í breiðholtinu, fellunum líklegast.
Eftir langar leitarferðir er fólk orðið svolítið þreytt, en mér þykir endalaust vænt um Jimmyinn minn og það var sömuleiðis hellingur af dóti sem ég mátti ekki við að missa í honum ..
Bílnúmerið er BZ314 og það eru mjög góð fundarlaun í boði! Endilega hafið augun hjá ykkur elskurnar, takk takk 
»
02.01.2009 19:00:19 / thorunn.
Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.
Naut (20. apríl - 21. maí):
Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.
Tvíburi (21. maí - 20. júní):
Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.
Krabbi (21. júní - 23. júlí):
Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.
Ljón (22. júlí - 23. ágúst):
Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.
Meyja (23. ágúst - 23. september):
Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.
Vog (23. september - 22. október):
Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.
Sporðdreki (23. október - 21. nóvember):
Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.
Bogmaður (22. nóvember - 21. desember):
Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.
Steingeit (21. desember - 20. janúar):
Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.
Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar):
Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.
Fiskur (19. febrúar - 20. mars):
Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.
Hvað segiði, passar þetta?? Merkilega rétt sko haha
»
24.12.2008 20:15:52 / thorunn.
Gleðileg jól elskurnar mínar !! Og farsælt komandi ár, maður segir víst solis 
Jólakveðja frá Ruglunum ykkar 
»
16.12.2008 16:16:00 / thorunn.
Beinbrotinn skókastari
Durgham Zaidi, bróðir blaðamannsins Muntazer al-Zaidi, segir í samtali við AFP fréttastofuna ekki vita hvort hann særðist á blaðamannafundinum er öryggisverðir yfirbuguðu hann eða í varðhaldi.
Að sögn Durghams Zaidi er bróðir hans í haldi í búðum á Græna svæðinu þar sem sendiráð Bandaríkjanna og helstu stjórnsýslustofnanir Íraks eru til húsa í Bagdad, höfuðborg Íraks.
Zaidi, sem er 29 ára gamall, er fréttamaður á sjónvarpsstöðinni Al-Baghdadia, er nú mjög umdeildur í landi sínu. Margir Írakar segja bræði hans í garð Bush réttlætanlega, aðrir eru hneykslaðir. Þúsundir manna efndu í gær til útifunda til að krefjast þess að honum yrði sleppt úr haldi.
Vilji arabar sýna einhverjum mikla óvirðingu er fátt talið heppilegra en að traðka á þeim með skítugum skónum. Bush reyndist of viðbragðsfljótur fyrir al-Zeidi og vék sér undan. Forsetinn virtist lítt móðgaður, sagði glaðhlakkalegur að skórinn hefði verið „númer 10“. Al-Zeidi er úr röðum sjíta og mun hata bæði Bandaríkjamenn vegna hernámsins og
trúbræðurna Írana sem hann segir hafa efnt til „siðferðislegs“ hernáms í Írak.
opup('/mm/frettir/popup/mynd.html?imgid=485724;nid=1386351', 670, 535, 'yes')">
Þetta er ss mynd af þessum manni sem framdi þennan "andstyggilega glæp" að kasta skó í kókhausinn og ógeðið hann Bush, mann sem ætti að vera réttdræpur! hvað finnst ykkur um þetta?? Guð sé lof að Obama vann!
»
10.12.2008 22:42:17 / thorunn.
Kveldið!
Einsog flestir af mínum vita er ég ekkert fyrir jólin, bara núll. Á jólunum stunda ég venjulega bjórþamb og fer í pool, og jújú ég kaupi nú reyndar jólagjafir. Þessi jól verða nú eitthvað öðruvísi þar sem mín drekkur nánast ekki neitt, en jólaskapið er að síga inn ..
Í gærkvöldi fór ég með konu sem býr hér á sambýlinu sem ég vinn á á jólaball, hún var svo ánægð og það var svo gaman hjá henni, brosti og hló og ég fékk ánægjukitl í magann, því mér þykir nebblilega óendanlega vænt um kelluna
Við fengum jólapoka með jólanammi, og við skreyttum jólatréð hér í gær. Í kvöld var pakkað inn jólagjöfum. Ég talaði við mömmu í símann áðan og hún sagði mér að amma og afi yrðu í bænum á jólunum, þá fékk ég svona tilhlökkunar og ánægjukitl, var búin að sjá fyrir mér mjög einmanaleg jól og búin að skrá mig á vaktir flest alla dagana haha ..
En þetta er það sem jólin snúast um og sérstaklega á þessum erfiðu tímum og ég dauðhlakka bara til! Að vera með fjölskyldunni minni, allir saman og hlæjandi, það gerist nú ekki oft.
Ég var búin að ákveða að skreyta lítið sem ekkert, kaupa gjafir fyrir helstu vini og vandamenn, og að sjálfsögðu köttinn en ætlaði svo ekkert að gera neitt meir. Í kvöld breyttist það
Eftir vinnu ætla ég heim að setja upp seríu og gramsa í jólaskrautinu mínu, gefa kisu eitthvað extra gott að borða og njóta þess að vera í rólegheitum heima! Og um helgina ætla ég að drífa jólainnkaupin af, og ef að það er einhver aukatími ætla ég að baka, en ef ekki fer ég bara upp í Björnsbakarí, alveg yndislegar sörur þar!
Veriði nú ánægð að það séu að koma jól, og ekki gleyma náunganum, fullt af fólki sem á ekki fyrir mat og hvað þá gjöfum (og nei þessu BLER kona var ekki djönkari!!)
Ykkar Jólastelpa Þórunn Sylvía 
»
30.11.2008 18:10:50 / thorunn.
Góðan daginn elsku vinir og ég vona að þið hafið átt ánægjulega helgi.
Ætla að byrja á að segja frá því að Arna hélt barnaafmæli í gær, Beta orðin 4ra ára! Svo var haldið annað í dag, svona "ættingjaafmæli". Það gekk bara dýrindis vel í gær og örugglega í dag líka, góðar kökur, fullt af krökkum og vinkonum og Beta mátti ekkert vera að því að heilsa, enda fullt af pökkum hehe
En ég er búin að vera að spá svolítið í internetinu undanfarið. Þetta tímadrepandi, ávanabindandi og nauðsynlega drasl. Þar er hægt að leita sér upplýsinga um næstum því allt, þar er hægt að græða helling af peningum (sömuleiðis tapa) og þar er hægt að leggja fólk i einelti undir nafnleynd. Og talandi um netið, þetta helvíti sem maður er mest upptekinn af alla daga, Myspace. Ég er búin að vera með Myspace í cirka 2 ár og er endanlega komin með ógeð, enda búin að njósna um alla sem ég get njósnað um og búin að gera síðuna mína svo flotta að það er bara eiginlega ekkert meira að gera hehe .. En neinei þá kemur svolítið verra í staðinn, Facebook! Þarna getur fólk tjáð sig, sett inn fréttir, búið til hópa, fundið gamla vini o.s.f.
Okey þetta er allt voða gaman og alveg lífsnauðsynlegt í allskonar leiðindum, ástarsorgum eða ef manni einfandlega leiðist. Og td "hitti" ég bestustu bestu vinkonu mína úr æsku á Facebook um daginn, og við ákváðum að fara á kaffihús í næstu viku, mín ekkert lítið spennt enda búin að sakna hennar óendanlega mikið!
En hafiði spáð í verri hliðunum? Öllum sem hefur verið svindlað á, mannorðið, og ég tala ekki um þegar fyrirtæki "gúgla" mann og sjá allar djammmyndirnar og neita manni um vinnu? Öllum samböndunum sem hafa rústast af því einu að skrá sig "single" eða adda td gömlum kærasta? Afbrýðisemi er stórhættulegur hlutur. Og fyrir mitt leiti verð ég bara að segja að þau eru ófá rifrildin sem ég hef lent í útaf Myspace (ég er svo ný á fésbókinni ennþá hehe). Og eftir langa umhugsun hef ég komist að niðurstöðu, bloggið mitt er bara nóg. Persónupplýsingar sem eru um mig hér eru andskotans nóg þó að þær þurfi ekki að vera útum allt netið líka. Ég ætla að kveðja myspeisið mitt og jafnvel Facebookið, hætta þessu rugli og fara að gera eitthvað uppbyggilegra við tímann minn

En ég held samt að sjálfsögðu áfram að gleðja ykkur með skrifum mínum hér vikulega hahaha ..
Hafiði það gott elsku vinir og eigið æðislega viku
»
23.11.2008 09:33:05 / thorunn.
Þessi texti sem þú sást hér fyrir ofan er búinn að vera FASTUR í hausnum á mér frá þeim merka atburði, föstudaginn 21. Nóv kl.11:45, því þá fékk ég nebbla bílpróf einsog flestir vita!
Mér líður eins og ég hafi verið föst í búri og sé orðin frjáls, án gríns, þvílíkur léttir! Uppáhaldsbókin mín þegar ég var yngri heitir einmitt "Fugl í búri" og það á kannski soldið vel við núna..
Ökukennarinn minn var líka kominn með hundleið á mér, enda er ég búin að byrja og hætta hjá honum í 4 ár og greyið kallinn hefur ekki komist hjá því að verða trúnaðarvinur minn haha, og ég held að ég eigi barasta eftir að sakna hans!
En hann sagði ss að það væri kærasta mínum að þakka að ég náði þessu loksins, enda sá eini sem skammar mig þegar ég geri vitleysur í akstri haha .. Þvílíkur munur að geta skotist hingað og þangað án þess að tuða í allavega 2 manneskjum um skutl fyrst haha .. En nóg um það ..
Annars er það að frétta af okkur skvísum að allt gengur barasta vel, Sif bara að brillera í vodafone og maður hittir hana varla lengur útaf öllum nýju vinnuvinkonunum haha og manneskjan djammar báða dagana allar helgar (ég gæti það ekki þó að mér væri borgað fyrir það!)
Gugga er komin með lögheimili í Hveragerði og ætti eiginlega að spara sér það að hafa síma!
Ólöf er LÍKA að klára bílprófið og er ennþá með Bigga sínum bara og Arna ennþá í Breiðholtinu með snúlluna sína sem á btw afmæli næstu helgi stelpur ..
Bettý er búin að eiga, litla snúllu sem var 11 merkur, er víst algjört bjútý! .. Held ég sé að muna eftir öllum sry ef ég gleymi
Og fyrst ég er byrjuð er sossem allt í lagi að halda áfram með fréttirnar .. Við Gaui erum mikið að spá í að kaupa okkur hund, mikið búið að þræta um tegund haha, ég vildi svona lítinn og sætan með risa augu, en hann eitthvað sem hann getur látið sjá sig úti með haha .. Féllumst svo lítinn varðhund, ekki ósvipuðum og hér fyrir neðan!
Annars er hann svo að fara til Tyrklands á miðvikudaginn, uss öfunda hann
En jæja, nóg að gera hjá mér á næstunni, ég ætla mér að klára þennan blessaða naglaskóla í janúar þannig endilega koma í lagfæringu á 3ggja vikna fresti stelpur haha ..
Svo förum við Gugga í stuðningsfulltrúa-nám í janúar, og svei mér ég hlakka bara soldið til! Ætli maður flýi svo ekki til Danmerkur or some eftir það bara ..
En hafiði það gott elsku vinir og ekki hika við að hringja ef ykkur vantar far haha, ætli þið eigið það ekki skilið ... Loooove you! 

Þetta er boston terrier, og alveg ógeðslega sætur! Og planið er að skíra hann Hitler
»
05.11.2008 19:56:01 / thorunn.
Sæl veriði, langt síðan maður hefur gert eitthvað af viti hér! Enda orðnar eldgamlar og latar, bendi á fésbækurnar okkar ef þú vilt stunda persónunjósnir! En nóg um það ... Nú eru vinir mínir að verða endanlega geðveikir á mér og ég tala nú ekki um kærasta minn jiminn .. Þannig er neflilega mál með vexti að fyrir nokkrum mánuðum fékk mín áhuga á pólitík, og sá áhugi eykst með hverjum degiginum sem líður, enda allt að fara til fjandans hérna .. Gaui stakk upp á að ég myndi fara á þing, þar gæti ég tuðað og tuðað og einhver væri actually að hlusta haha, en fyrir ykkur sem er ekki sama um landið ykkar ætla ég að bjóða ykkur með mér í mótmælagöngu á laugardaginn .. hahahah .. Vantar líka hugmynd á skilti
Getið bjallað ef þið hafið áhuga! (hef nú ekki MIKLA trú á því eeen) Og nóg um það .. Annars allt það sama bara, allir að drekkja sér í vinnu og ekki vinnu, og skólum .. Svo er maður orðinn svo lúðalegur, eina fylliríið sem maður fer á í svaka tíma endar auðvitað með ósköpum, spurning um að reyna aftur næstu helgi bara haha .. En jæja hef barasta ekkert að gera hérna í vinnunni og ætlaði að koma með smá goss en er alveg tóm .. Vil líka minna ykkur á stelpur mínar að þið eruð með aðgang hérna og getið alveg hent smá inn og hætt svo að tuða í mér hvað ÉG sé löt haha ... Looove 
»
06.10.2008 22:30:01 / thorunn.
Jæja dömur mínar! Hressar? 
Ég veit ekki með ykkur en ég er komin með ógeð af krepputali! Eftir langt kvöld þar sem legið var yfir Geir Harde hef ég komist að niðurstöðu, ef að bankarnir loka ætla ég ekki að fara að grenja, þá tek ég bara suma til fyrirmyndar og geymi peningana mína uppi í skáp!
Og news! Bensínið á Íslandi er EKKI að verða búið, forstjóri og talsmaður N1 eða ESSO sem ég man aldrei hvað heitir sagði að við þyrftum einhverja milljarða til að fá nýjar birgðir, en gömlu birgðirnar eru samt ekki að klárast sjáiði til .. Og plús það að ef að svo skyldi fara myndu ekki bara allir slá saman í púkk right? Ekki það að mér sé ekki skítsama þar sem ég kaupi aldrei bensín hehe 
Og það allra fáranlegasta .. var að tala við hana móður mína í símanum áðan og hún var einmitt að hlæja að þessu, KOTASÆLA seldist upp í krónunni um helgina .. Hver ætlar sér að geyma kotasælu? Hún eyðileggst eftir liggur við nokkra daga hehe ..
Svo er verið að reynað troða þessu upp á hinn og þennan, málið er bara það að bankarnir úti í heimi eru að fara á hausinn, þess vegna er þetta svona hérna og við getum bara ekkert gert í því .. Fólk er að kenna seðlabankanum um þetta, og það er meira að segja kominn undirskriftalisti til að Davíð Oddson segi af sér, en Davíð er löngu búinn að vara við þessu sem og spámenn/konur landsins! (ekki það að það sé einhverntímann hlustað á þau) Við erum undir áhrifum frá Bandaríkjunum og öllum heiminum og þar sem ráðamenn landsins sem og ALLIR íslendingar eru á peningafylleríi alla daga erum við fokked ....
Rauðhærða fíbblið sem var með útvarpsþáttinn á xinu kom með góða tillögu aftan á fréttablaðinu í dag og mér leið einsog þetta væri sagt úr mínum munni enda var þetta uppáhaldsetningin mín hér áður fyrr .. Hættum að spá í þessu, þetta reddast! Það gerir það alltaf 
Knúúús til ykkar með háu bíla og íbúðalánin hehe
Kveðja frá Þórunni Pollíönnu Óskarsdóttur!

»
29.09.2008 21:28:05 / thorunn.
Já maður spyr sig .. Krónan í hakki, bíla og íbúðalán fara síhækkandi, Fleiri fleiri fyrirtæki farin á hausinn (td Hans Petersen) og það nýjasta .. Glitnir að fara á hausinn! Ríkið tók yfir meirihlutann í Glitni í dag, og hvað gerist þegar meira að segja bankarnir eru ekki að meika þetta ... Það kom fram í fréttunum í kvöld að hann vinur okkar Jón Ásgeir hefði það ekkert alltof gott þessa dagana (meira að segja hann!) og hann á nú stóran meirihluta af búðunum okkar hér í bæ .. En við Ruglur höfum engar áhyggjur enda svo góðar í að spara
haha .. En nóg um það .. Aðrar slæmar fréttir sem ég ætla að deila með ykkur, því að þessir vinir mínir eru ekkert rosalega duglegir við að fylgjast með
Í dag var samþykkt nýtt reykingafrumvarp í heiminum, og verður rætt hvað það hefur í för með sér á næstunni .. Tvær af tillögunum sem komu fram voru: Hækka sígarettur um 10 % á ári og eftir 10 ár eiga sígarettur að vera seldar gegn lyfseðli í apótekum landsins, og þú þarft að eiga rétt á þeim samkvæmt læknisráði, og vera búinn að reyna nokkrar meðferðir fyrst .. Hahahha .... Því hér á landi er víst faraldur sem margir deyja af árlega (einsog fólk vissi það ekki fyrir) En ég segi það nú .. Afhverju má ég ekki bara drepa mig í friði? Því eitt veit ég nú og ég veit um marga fleiri, td hana Ólöfu elsku vinkonu mína hehe .. *Að getið þið ímyndað ykkur hvað myndi gerast ef við fengjum ekki okkar sígarettur? Bara smá pæling .. Ætli ég yrði ekki búin að drepa einhvern úr skapvonsku eftir mánuð! En kannski verður maður samt orðinn svo healthy eftir 10 ár að maður verður bara hættur þessu, ég veit það ekki .. Allavega byrjaðar í ræktinni aftur haha .. En jæja hætt að tuða, bara smá áhyggjukast hérna í vinnunni .. Haha ... Luuv 

... Nýja logoið hjá Glitni haha
»
...